Bláorfinn (Leuciscus idus caeruleus) er náttúruleg vatnakarfategund sem er oft höfð í tjörnum vegna þess að hún lætur allan gróður vera. Hún er einnig ræktuð til manneldis. Hún er grennri og sneggri en hefðbundnir gullfiska…
Bláorfinn (Leuciscus idus caeruleus) er náttúruleg vatnakarfategund sem er oft höfð í tjörnum vegna þess að hún lætur allan gróður vera. Hún er einnig ræktuð til manneldis. Hún er grennri og sneggri en hefðbundnir gullfiskar og mjög mikið á ferðinni, nánast ofvirk. Kemur frá Evrasíu og er kaldavatnsfiskur. Verður um 30 cm löng í búrum eða tjörnum en getur orðið enn stærri í náttúrunni. Feimin nema í stærri hópum, sex eða fleiri. Rótar lítið eftir æti í búrbotninum, ólíkt gullfiskum. Best er að gefa Spectrum Goldfish fóðrið fyrst í stað en síðan fljótandi Spectrum Koi-fóður. Étur helst það sem við yfirborðið og lætur fóður vera sem fellur til botns. Gott er að salta í búrin með gullfiskasaltinu frá SeaChem. Er viðkæmur fyrir vatnsgæðum, viðkvæmari en gullfiskurinn. Sýrustig pH <7. Þrífst best í 4.000L tjörnum eða stærri með góðum hreinsibúnaði.Tegund: Blue Orfe 7/10Stærð: 7-10 cmAfgreiðslutími: sérpöntunarvara - 4 vikur (eftir framboði hverju sinni)